Ég skulda Bylgju vinkonu minni 160 milljónir. Ég er ekki borgunarmanneskja fyrir skuldum mínum og Bylgja gerir sér grein fyrir því að hún geti aldrei innheimt alla skuldina. Hún fellir niður 60 milljónir af skuldinni. Telur mig geta borgað rest.
Börnin mín frétta það og vilja sinn hluta af gróðanum. Rukka mig um 30 milljónir hvort.
Hvar á ég að fá þessar 60 milljónir?
3 responses so far ↓
Kristjana skuldar mér gommu! « Játningar skófíkils // 6.11.2009 kl. 11:52
[...] skuldar mér gommu! Alltaf er maður að græða…komst að því áðan að Kristjana skuldar mér helling af peningum. Hún efast um að vera borgunarmanneskja fyrir þessu en ég tek [...]
bylgja // 6.11.2009 kl. 14:31
hvað með 100 milljónirnarn mínar?
Kristjana Bjarnadóttir // 6.11.2009 kl. 22:21
Bylgja mín, ég sagði að þú teljir mig geta borgað. Þú verður bara að bíða og sjá……….
Annars svona fyrir þá sem ekki skilja þá er ég að vísa hér til skýrslu AGS. Íbúðalán bankanna voru víst í kringum 1600 milljarða. Mat AGS er að 600 innheimtist ekki. Lýðskrumarar fara enn og aftur af stað og ætla að deila þessum 600 milljörðum út, svona bara rétt eins og þetta sé skyndilega fundið fé.
Við skulum bara vona að þessi 1000 milljarðar innheimtist, rétt eins og Bylgja verður bara að vona að ég greiði henni mitt.
Ég held hins vegar að börnin mín fái ekki neitt.