Eldgosaskoðun

Þrátt fyrir að vera búin að þramma frá Skógum upp að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi var ég alls ekki búin að fá nóg af eldgosi. Ég hafði mikinn áhuga á að skoða gosið líka frá Þórsmörk. Einkum voru það hraunfossarnir niður í Hrunagil og Hvanngil sem toguðu í forvitin augu mín. Ég spurði Rán, dóttur mína hvort hún væri til í að koma með mér og það þurfti nú ekki að nefna það oft, auðvitað var hún til í það. Við fengum svo líka tvær frænkur þær Lindu og Selmu með í kompaníið. Þetta varð því svona frænkuferð með Ferðafélagi Íslands á föstudaginn langa.

Útivistaáhugi Íslendinga hefur bókstaflega gosið upp því fimm rútur voru fylltar af útivistaáhugafólki sem vildi endilega komast í Þórsmörk þennan dag. Gengið var upp úr Strákagili í Básum og göngunni heitið upp á Morinsheiði þar sem við vonuðumst til að sjá hraunið renna niður. Alla leiðina var maður við mann á göngustígnum.

Veðrið var frábært og raunverulega bara ánægjulegt að rölta þarna upp Strákagilið. Svo tóku Kattarhryggirnir við en það þótti mörgum nokkuð svakaleg ganga. Þar er gengið á hrygg en snarbratt niður í gilin sitt hvoru megin. Gönguleiðin liggur stöðugt upp á við en hvergi er snarbratt. Í fjarska sáust gosstöðvarnar og fjarlægðin styttist óðum.

Seinasta brekkan var upp Heiðarhornið og var þar eins og annars staðar maður við mann á göngustígnum.

Á Morinsheiði lentum við í éli en það gerði ekkert til því við vorum vel útbúnar. Við enda Morinsheiðarinnar er Heljarkambur. Þar voru Björgunarsveitarmenn með búðir og sáu til þess að enginn færi yfir Heljarkamb. Vissulega hefði verið gaman að fara þar yfir og upp Bröttufönn. Þá hefðum við fengið góða yfirsýn yfir gosstöðvarnar. Það hefði hins vegar verið algert glapræði að hleypa fólki þar yfir þar sem snjórinn var glerháll og snarbratt niður í gilin til beggja handa, annarsvegar Hrunagil með glóandi heitu hrauni og hins vegar Hvanngil, einnig með glóandi heitu hrauni.

Þarna stóð Sindri vaktina daginn áður og langt fram eftir nóttu. Hann var þarna einnig í gærkvöld og fram eftir sl nótt. Við létum okkur hins vegar duga stutt stopp og fannst alveg nógu kalt að stoppa þarna stutt við. Við höfðum ekki heppnina með okkur því hraunið rann ekki eldglóandi fram af brúninni rétt á meðan við vorum þarna. Eigi að síður fannst okkur stórmerkilegt að sjá þetta.

Eftir hæfilega dvöl þarna uppi, drifum við okkur niður. Einn skemmtilegasti partur niðurleiðarinnar að mati ungmeyjanna var að renna sér á rassinum niður brekkuna í Heiðarhorninu. Gaman að því. Á köflum var flughált á göngustígnum, lá ég einu sinni kylliflöt. Þennan daginn var víst fleirum hált á svellinu og þurfti víst þyrlu til að sækja nokkra göngumenn síðar um kvöldið. Ákafi fólks í að sjá gosið í myrkri er skiljanlegur en það er stórvarasamt að ganga þarna í björtu, hvað þá í myrkri.

Þegar niður var komið lá leiðin yfir í Langadal. Eftir stutt stopp þar var stutt í ljósaskiptin en planið var að horfa yfir gosstöðvarnar af Valahnjúk í ljósaskiptunum. Þangað skokkuðum við og er óhætt að segja að útsýnið hafi verið ægifagurt. Eiginlega skildi ég hugtakið “jarðeldar” afar vel þegar ég horfði þarna yfir. Við sátum þarna dáleiddar nokkra stund, eiginlega þar til okkur var orðið það kalt að við urðum að halda niður. Þá var líka komið að brottför og klukkan farin að halla í 10 um kvöldið. Ferðin úr Þórsmörk gekk afar hægt enda vegurinn torfær. Heim vorum við komnar um kl 2 um nóttina vel þreyttar en afar ánægðar.

Hér má svo sjá fleiri myndir úr ferðinni.

About Kristjana Bjarnadóttir

Ég er sveitastúlka af Snæfellsnesinu og hef í ca 25 ár reynt að aðlagast lífinu í höfuðstaðnum. Hef áhuga á samfélagsmálum í víðu samhengi og tel að hægri / vinstri skilgreining í pólitík sé langt frá því úrelt. Önnur áhugamál mín tengjast útivist og ferðalögum innan lands sem utan. Netfang: bubot.kristjana@gmail.com
This entry was posted in Ferðalög, Lífsstíll. Bookmark the permalink.

2 Responses to Eldgosaskoðun

  1. Ásdís says:

    Glæsilegar frænkur þarna á ferð. Á ekki bara að bregða sér aftur þegar fer að vora?

  2. Pingback: Litið um öxl | Efst í huga

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s