Áfram skal haldið með æfingar fyrir vorgöngur. Í gær var skundað á Móskarðshnjúka. Dásamlegt veður og útsýni til allra átta. Móskarðshjúkar eru fín æfingaganga. Við vorum ríflega 2 og hálfan tíma í göngunni og gáfum okkur góðan tíma á toppnum. Erfiðleikastigið er mjög svipað og að ganga á Esjuna, jafnvel auðveldara þar sem þetta er ekki eins bratt.
Í dag var svo hefðbundin mánudagur með TKS. Hallgrímur var hlaupinn. Sú leið liggur frá sundlaug Seltjarnarness, út á Ægissíðu, gegnum Háskólasvæðið, gegnum Hljómskálagarðinn, upp Njarðargötu, niður Skólavörðuholtið, gegnum miðbæinn og síðan vesturbæinn og út á Ánanaust og með sjónum til baka að Sundlaug Seltjarnarness. Alls um 9 km.
Að venju var margt skrafað, þjóðmálin krufin og forvitnast um ferðir og hagi annarra hlaupafélaga.
Dásamlegt líf.
Pingback: Litið um öxl | Efst í huga