Brennisteinsfjöll á uppstigningadegi

Æfingaprógram mitt fyrir Sveinstind í Vatnajökli heldur áfram.

Á miðvikudag var hefðbundinn hlaupadagur með TKS nema hvað ég lét mér nægja að hlaupa hefðbundinn hring útfyrir Bakkatjörn. Það eru um 5,5 km. Ég sleppti brekkusprettum þar sem ég var að spara mig fyrir göngu daginn eftir.

Á fimmtudag var Þóra gönguvinkona mín búin að skipuleggja langa æfingagöngu um Brennisteinsfjöll. Því miður hentaði dagurinn ekki vel fyrir marga og því vorum við bara 5 sem gengum þetta. Við hittumst við slysavarnaskýlið neðan við Grindaskörð kl 9.00 og var arkað strax af stað.

Í Brennisteinsfjöllum skoðuðum við minjar frá því seint á 19. öld en þá var þarna brennisteinsnám. Þarna eru rústir af kofa þar sem námamenn héldu til.

Einnig voru þarna múrsteinar sem skv. okkar heimildum eru leifar af ofni sem líklega hefur verið notaður við vinnsluna.

Eftir skoðun á þessu fyrrum námusvæði var arkað að gígnum Kistufelli. Það er stórfenglegur gígur og einhvern veginn getur maður ekki gert sér grein fyrir þeim umbrotum sem þar hafa verið þegar gígurinn myndaðist. Vorum við sammála um að slíkt eldgos væri af stærðargráðu langt utan við það sem nú er í gangi og finnst okkur nú nóg um það.

Áætlun Þóru hljóðaði uppá að fara að Eldborg en þar sem einhver tímapressa var á henni sjálfri var ákveðið þegar um 1,5 km voru eftir að snúa við og eiga Eldborgina inni. Alls varð gangan þó um 20 km og vorum við um 7 tíma í ferðinni.

Var ég bara nokkuð ánægð með sjálfa mig og ástand skrokksins. Nú er bara að halda áfram á sömu braut og þá verður Sveinstindur bara ánægja.

Hér er kerlingin sjálf í Grindaskörðum á bakaleið.

Dagurinn í dag var tekinn sem hvíldardagur enda er það leyfilegt eftir svona göngudag. Reyndar moldvarpaðist ég í garðvinnu, veit ekki hvort það telst með sem gönguæfing.

About Kristjana Bjarnadóttir

Ég er sveitastúlka af Snæfellsnesinu og hef í ca 25 ár reynt að aðlagast lífinu í höfuðstaðnum. Hef áhuga á samfélagsmálum í víðu samhengi og tel að hægri / vinstri skilgreining í pólitík sé langt frá því úrelt. Önnur áhugamál mín tengjast útivist og ferðalögum innan lands sem utan. Netfang: bubot.kristjana@gmail.com
This entry was posted in Ferðalög, Lífsstíll. Bookmark the permalink.

3 Responses to Brennisteinsfjöll á uppstigningadegi

  1. Sævar says:

    “Hér er kerlingin sjálf í Grindaskörðum á bakaleið.”
    Og skarðið sem þú stendur í heitir ein
    mitt Kerlingarskarð.
    Góð ferðasaga hjá þér af mjög skemmtilegu svæði. Ef þið hefðuð farið austanmegin við Kistufellið hefðuð þið getað skoðað rústir af flaki af flugvél sem rakst á Kistufellið á stríðsárunum…

  2. Pingback: Litið um öxl | Efst í huga

  3. Pingback: Litið um öxl | Efst í huga

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s