Smáþúfur og Kerhólakambur

Í gær stóð Hugrún fyrir göngu á Smáþúfur í Esju. Þetta er þægileg ganga sem lætur ekki mikið yfir sér en eigi að síður er farið í tæplega 600 m  hæð sem er litlu lægra en þegar farið er upp að Steini við Þverfellshorn.

Þegar ég sat í seinustu viku (einu sinni sem oftar) yfir kortagrunni Landmælinga í tölvunni minni sá ég að það var tiltölulega auðvelt að fara þaðan og að Kerhólakambi í Esju og síðan annað hvort niður hjá Esjubergi eða að ganga eftir Kerhólakambi alla leið að Þverfellshorni og síðan niður hjá Mógilsá.

Það var ekki vandkvæðum bundið að fá nokkra göngufélaga mín með mér í þennan leiðangur en þar sem veður og skyggni var ekki með því albesta þá létum við nægja að fara niður hjá Esjubergi.

Það er ansi bratt þarna niður og skal viðurkennt að það tók í framanverð læri og hné. Ekkert til að hafa áhyggjur af en nóg til að 5-7km hlaup þóttu mér ekki vera gáfuleg í dag og tók því hvíld. Stefni að einhverju á morgun í staðinn.

About Kristjana Bjarnadóttir

Ég er sveitastúlka af Snæfellsnesinu og hef í ca 25 ár reynt að aðlagast lífinu í höfuðstaðnum. Hef áhuga á samfélagsmálum í víðu samhengi og tel að hægri / vinstri skilgreining í pólitík sé langt frá því úrelt. Önnur áhugamál mín tengjast útivist og ferðalögum innan lands sem utan. Netfang: bubot.kristjana@gmail.com
This entry was posted in Lífsstíll. Bookmark the permalink.

One Response to Smáþúfur og Kerhólakambur

  1. Pingback: Litið um öxl | Efst í huga

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s