Personal best á Esjuna

Á hverju voru set ég sjálfa mig í próf, prófið er tímataka í göngu upp að “Steini” undir Þverfellshorni í Esju. Ég hef sett mér að vera undir 50 mín að ganga þetta til að mega fara með í vorgöngu TKS. Þar sem ég hef valið mér félaga sem eru fjallbrattir og flestir í toppformi hef ég enga löngun til að vera dragbítur í göngu með þeim. Því rembist ég eins og rjúpan við staurinn að haf við þeim. Einhverra hluta vegna var ég farin að óttast að þetta árið yrði ég að slaka á kröfunum til að leyfa sjálfri mér að vera með, ég var bara ekki of viss um að standa undir eigin kröfum.

Þessi ótti reyndist ástæðulaus. Ég tók prófið í kvöld og var 48mín, held bara að það sé persónulegt met.

Reyndar svindlaði ég smá. Ég ákvað að vera létt á mér og fara frekar á hlaupaskóm en gönguskóm. Þar sem allt var þurrt og færið gott var það skynsamleg ákvörðun.

Nú eru bara rétt rúmar 2 vikur í Sveinstind og tilhökkunin eykst. Það er frábært að hafa svona takmark sem heldur manni við efnið í æfingum. Svo er ekki leiðinlegt að ganga með félögum sínum kvöldgöngu í góðu veðri.

Og þá er bara að vona að helgarveðrið verði gönguvænt.

About Kristjana Bjarnadóttir

Ég er sveitastúlka af Snæfellsnesinu og hef í ca 25 ár reynt að aðlagast lífinu í höfuðstaðnum. Hef áhuga á samfélagsmálum í víðu samhengi og tel að hægri / vinstri skilgreining í pólitík sé langt frá því úrelt. Önnur áhugamál mín tengjast útivist og ferðalögum innan lands sem utan. Netfang: bubot.kristjana@gmail.com
This entry was posted in Lífsstíll. Bookmark the permalink.

One Response to Personal best á Esjuna

  1. Pingback: Litið um öxl | Efst í huga

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s