Eins og áður hefur komið fram eru þriðjudagar göngudagar með Hugrúnu. Í gær var farið á Ingólfsfjall en í þetta sinn án Hugrúnar. Hún hafði auðvitað samviskusamlega fengið staðgengla til að halda utanum hópinn.
Gengið var upp frá Þórustaðanámunum og upp á brúnir. Þar er ágætis útsýni til vesturs á Hellisheiðina, yfir Ölfusið og flóann. Einnig er gott útsýni yfir Selfoss og alla jafna einnig til austurs. Í gærkvöld var hins vegar austuráttin þakin öskubakka.
Eitthvað hrjáði svo letin mig í dag og skrópaði ég á hlaupaæfingu. Samviskubitið yfir því hrjáir mig ekki. Alveg nóg í gangi.

Pingback: Litið um öxl | Efst í huga
Pingback: Litið um öxl | Efst í huga