Blikdalshringur í Esju

Nú í vor hét ég því að kanna Esjuna betur en ég hef áður gert. Hugmyndaleysi mitt í vali á gönguleiðum mínum á Esju hefur hingað til verið til skammar.

Svo sannarlega var bætt úr þessu í dag. Við hjónakornin “röltum” Blikdalshringinn.

Við höfðum fyrr í vikunni rætt um að fara í góða göngu nú um helgina en ekki blés nú vel fyrir það á laugardag. Einhvern veginn vorum við ekkert að hugsa um gönguferðir þegar við fórum að sofa og ekkert rætt um að vakna snemma og hafa daginn fyrir okkur. Eins og oft vaknaði ég snemma og gáði til veðurs, viti menn, vestrið var tandurhreint og skýjahula yfir Esjunni var líkleg til að láta í minni pokann fyrir góða veðrinu. Svo heppilega vildi til að vel stóð á í maraþonæfingaprógrammi Darra. Hann þarf oft að eyða fleiri klukkutímum í hlaup og hefur því stundum lítinn tíma aflögu fyrir gönguferðir með eiginkonunni en þetta var hvíldardagur og því upplagt að fara í gönguferð.

Við byrjuðum gönguna við vigtunarplanið rétt við munnann á Hvalfjarðargöngunum. Gerðum strax fyrstu og líklega einu mistökin í leiðavali. Við stefndum strax á Tindstaðafjallið en fórum alltof ofarlega áður en við reyndum að fara yfir Ártúnsána sem rennur um Blikdalinn. Þegar við ætluðum yfir hana varð fyrir okkur mikið gil. Því sáum við okkur þann kost vænstan að fara aðeins niður aftur og niður í gilið og þar yfir. Þetta tafði okkur nokkuð. Mæli ég hiklaust með því að fólk fari sem fyrst yfir ána og stefni síðan á Tindstaðafjallið.

Leiðin upp að fjallinu var ótrúlega drjúg. Að sunnanverðu lítur fjallið út fyrir að vera ókleift en norðan í fjallinu er brött brekka sem er þokkaleg uppgöngu. Líklega tók það okkur um þrjá klst að komast þarna upp. Þegar þar var komið var þar fyrir ung stúlka. Hún reyndist austurísk vinnukona á bæ í dalnum fyrir neðan okkur. Dalurinn var Miðdalur, líklega var hún í vinnumennsku á bænum Miðdal. Þetta var kornung stúlka ca 18 ára á gallabuxum, strigaskóm og bómullarbol. Þetta var frídagurinn hennar og hafði hún ákveðið að eyða honum í að kanna fjallið sem hún horfði á alla daga. Greinilega dugnaðarstúlka.

Við notuðum öll tækifærið, hún tók myndir af okkur og við tókum myndir af henni. Svo héldum við öll okkar leið.

Göngufærið þarna á Tindstaðafjallinu var erfitt, djúpur mosi. Þegar mosanum lauk tók við grjót af mismunandi stærð. Má segja að öll leiðin að Hábungu Esju hafi verið erfitt gönguland. En útsýni til beggja átta var glæsilegt, sérstaklega þar sem fjallshryggurinn milli Blikdals og Kjósarinnar var hvað mjóstur.

Þetta var í fyrsta skipti sem ég snerti Hábungu Esju. Kominn tími til. Að því loknu sáum við að okkur var ekki til setunnar boðið því okkur sóttist ferðin mun hægar en við gerðum ráð fyrir. Stefnan var tekin á Kerhólakamb og nú var gefið í. Göngulandið þarna megin Esjunnar var líka mun betra og sóttist okkur ferðin betur. Fengum að vísu á okkur rigningardembu en skyggnið hélst gott allan tímann.

Alls gengum við 24km og mestallan tímann í 800-900m hæð. Hafði ég heyrt frá manni sem fór þetta í vetur að hann hafi farið þetta á 8klst en vel væri hægt að vera fljótari. Það má vel vera en við vorum slétta 8klst og héldum vel á. Stoppuðum lítið, aðeins tvisvar til að setjast niður og stikuðum nokkuð greitt seinni hlutann. Fyrri hlutinn var hins vegar frekar torfarinn að okkar mati og tel ég erfitt hefði verið að fara mikið hraðar.

Þessi ganga er fín dagsganga fyrir bratt göngufólk og góð leið til að kynnast Esjunni frá mörgum nýjum sjónarhornum.

About Kristjana Bjarnadóttir

Ég er sveitastúlka af Snæfellsnesinu og hef í ca 25 ár reynt að aðlagast lífinu í höfuðstaðnum. Hef áhuga á samfélagsmálum í víðu samhengi og tel að hægri / vinstri skilgreining í pólitík sé langt frá því úrelt. Önnur áhugamál mín tengjast útivist og ferðalögum innan lands sem utan. Netfang: bubot.kristjana@gmail.com
This entry was posted in Ferðalög, Lífsstíll. Bookmark the permalink.

2 Responses to Blikdalshringur í Esju

  1. Ásta Einarsdóttir says:

    Mikið er gaman að lesa pistlana þína og skoða myndirnar. Takk fyrir.

  2. Pingback: Litið um öxl | Efst í huga

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s