Aftur með!

Seinustu tíu ár hefur hlaupaklúbbur Seltjarnarness átt ríkan sess í huga mér og ómældur tími farið í hlaup, göngur og annað aktívitet tengt þessum klúbbi. Nú í nánast heilt ár hef ég lítið getað fylgt félögum mínum eftir. Það þarf náttúrulega ekkert að orðlengja það hversu illa mér hefur líkað að komast ekki út að hreyfa mig almennilega. Var ég á tímabili farin að halda að nú væri kominn tími á blómaskoðun, fuglaskoðun og jafnvel ljósmyndun.

Eftir liðþófaðagerð og massíva endurhæfingu hjá sjúkraþjálfara er ég mætt aftur. Fyrsti hlaupatíminn var í gær og gekk bara þokkalega. 5km lágu að baki, reyndar farið afar hægt og gekk ég inn á milli.

Nokkrar fjallgöngur hef ég farið í nú undanfarið og allt gengið að óskum. Þannig að ég er mætt aftur og hef tekið gleði mína á ný! Af þessu tilefni tók ég aftur upp tölvuna og skellti inn nýju bloggi. Það er orðið alltof langt frá seinustu færslu og ferðasaga frá því í sumar bíður birtingar!

About Kristjana Bjarnadóttir

Ég er sveitastúlka af Snæfellsnesinu og hef í ca 25 ár reynt að aðlagast lífinu í höfuðstaðnum. Hef áhuga á samfélagsmálum í víðu samhengi og tel að hægri / vinstri skilgreining í pólitík sé langt frá því úrelt. Önnur áhugamál mín tengjast útivist og ferðalögum innan lands sem utan. Netfang: bubot.kristjana@gmail.com
This entry was posted in Lífsstíll. Bookmark the permalink.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s