Efst í huga

Ársuppgjör
Árið 2011 var ekki mikið bloggár. Það er því full ástæða til að setja saman lítinn pistil og gera því helsta skil í einni færslu.

Líf okkar er að því leiti undarlegt að það geta skipst á tímabil skins og skúra, stundum líður langur tími án þess að maður sé minntur á endanleika lífsins, svo kemur annað tímabil þegar endanleikinn er nær manni. Árið 2011 var eitt slíkra tímabila.

Í upphafi árs fylgdi ég góðum vini, Páli Ólafssyni, til grafar. Allt árið hef ég fylgst náið með dugnaði og kjarki Þóru vinkonu minnar að fóta sig í nýrri tilveru án Palla. Það hefur verið mér lærdómsrík lífsreynsla og samvera mín með henni gefið mér mikið. Hugur minn er áfram með Þóru og á ég þá ósk heitasta að nýtt ár færi henni gleði og gæfu.

Í marsbyrjun var svo Katrín frænka mín kvödd hinstu kveðju. Að kveðja ættingja í blóma lífsins er ávallt erfitt, það er þó hjóm eitt við hliðina á missi foreldra, systkina, eiginmanns og barnungs sonar. Að horfa á sofandi drenginn í fangi föður síns á eftir kistunni snart mig mjög. Ég hugsa einnig til nánustu fjölskyldu Katrínar og óska þess að nýtt ár beri þeim gleði og gæfu.

Þann 26. apríl lést tengdamóðir mín eftir erfiða baráttu við krabbamein. Það er lífsreynsla að fylgjast með sínum nánustu heyja svona harða baráttu, það gerði tengdamóðir mín með mikilli reisn. Fram á seinasta dag ræddi hún landsins gagn og nauðsynjar og lét ekki af þeim vana sínum að hafa sterkar skoðanir á öllu. Hennar er sárt saknað. Seinni hluta ársins hefur fjölskyldan fetað stíginn án hennar, það hefur allt sinn tíma að venjast því.

Undanfarin ár hef ég verið við mjög góða heilsu og líkamlegt form mitt líklega aldrei verið betra en árið 2010. Ég var farin að halda að þetta væri sjálfgefið og ég gæti jafnvel endalaust bætt mig, var farin í huganum að setja mér stór markmið varðandi gönguferðaplön um sumarið. Eitthvað var vinstra hnéð að angra mig fyrri hluta ársins, ég reyndi að taka sem minnst eftir því og í algerri afneitun fór ég 19km skíðagönguferð um Hengilsvæðið í byrjun mars. Ekki vildi betur til en á leið niður Sleggjubeinaskarð rann ég illa, var þó með skíðin í fanginu, bögglaði vinstri löppina undir mér og reif á mér liðþófa. Ég bólgnaði illa upp og gekk draghölt þar til um miðjan maí þegar ég var skorin og liðþófinn snikkaður til. Það tók svo tíma að jafna sig og enn er ég ekki fullgóð. Þolinmæði mín var þó ekki meiri en svo að í lok júní var ég farin að ganga á alvöru fjöll og um miðjan júlí fór ég í þriggja daga bakpokaferð kringum Svartahnúksfjöll. Klárlega bjargaði sú ferð andlegri heilsu minni þetta árið en hvort bataferlið varð hnúskóttara fyrir vikið mun ég aldrei fá að vita með vissu.

Þar sem hnéð bólgnaði upp við þessa bakpokaferð setti ég göngur í salt og fór til sjúkraþjálfara í ágúst. Hann reyndist hinn mesti töframaður sem vildi meina að vöðvafestur í báðum lærum væru að angra mig og eymsli mín í báðum hnjám ættu rætur sínar þar. Þetta þóttu mér góðar fréttir og ágúst  og september fóru í að ná þessu úr mér. Massívar æfingar í ræktinni tóku við ásamt átaki í matarræði. Ekki veitti af þar sem ég hafði hreyft mig mun minna en ég var vön og vigtin sýndi áður óþekkta tölu, svo háa að ég sagði gömlu vigtinni upp og keypti nýja. Nýja vigti sýndi enn hærri tölu svo það var bara eitt að gera, éta minna og hreyfa sig meira.

Helstu fjöll og göngur á árinu:

Janúar: Tröllafoss og Stardalshnúkur, Búrfellsgjá, skíðaganga á Bláfjallasvæðinu.

Febrúar: Helgafell, Reykjafell og Æsustaðafjall í Mosfellsbæ, Eyrarfjall í Kjós, skíðaganga á Bláfjallasvæðinu.

Mars: Skíðaganga um Hengilssvæðið

Júní: Búrfellsgjá, Hafrahlíð, Reykjahyrna, Esjan upp að Steini, Þverfellshorn, Hátindur Esju og eftir endilangri Esju og niður með Smáþúfum.

Júlí: Helgrindur, kringum Svartahnúkfjöll, Torfajökull, Mosfell, Sandfell, Selfjall.

Ágúst: Sýrfell og Festi (lág fjöll á Reykjanesi, takmörk í takt við ástandið)

Oktober: Helgafell í Hafnarfirði, Högnhöfði, Hestfjall í Grímsnesi.

Nóvember: Hvalfell, Grímannsfell, Helgafell í Hafnarfirði.

Desember: Meðalfell í Kjós, skíðaganga á Bláfjallasvæðinu.

Eins og sést á þessari upptalningu eru fjöllin heldur lægri en oft áður, einnig er eyða í apríl og maí. Ekki fór orkan í hlaup, með einhverjum hætti varð ég að fá útrás. Ég fann mína orkuútrás: Að prjóna úr lopa. Þegar árið var liðið var listinn u.þ.b. svona:

Lopavesti: 2 stk

Lopapeysur:  16 stk

Lopabuxur: 4 stk

Lopahúfur: 5 stk

Lopavettlingar: 20 pör

Lopasokkar: 4 pör

Lopasjöl: 4

Það má segja að þessa árs fíkn mín hafi verið lopafíkn. Enda er ég búin að komast að því að ég get svalað fíkn minni og keypt lopa í Hagkaupum Skefunni allan sólarhringinn!

Á fótafúna tímabili ársins gerðist ég áhugamanneskja um fuglaskoðun. Þegar hreyfigetan var sem minnst keyrði ég út að Bakkatjörn með kíki og fuglabók. Hökti þar um og settist á stein við fjörukambinn. Það reyndist vera hin ágætasta skemmtun og fór ég víðar með kíkinn og skemmti mér vel. Heldur rólegri afþreying en fjallabrölt og hlaup en ágæt tilbreyting. Einnig gerðist ég grasagudda og safnaði jurtum og þurrkaði til að nota í krydd. Hefði átt að vera duglegri við það því þetta eru hin bestu krydd.

Heldur var ég afkastaminni á lestrarsviði en á seinasta ári. Eitthvað náði ég þó að lesa:

Bækur

Yrsa Sigurðardóttir: Ég man þig

Bergsveinn Birgisson: Svar við bréfi Helgu

Gunnar Friðriksson: Mannlíf í Aðalvík

Þórleifur Bjarnason: Hornstrendingabók

Camilla Läckberg: Ástandsbarnið

Camilla Läckberg: Vitavörðurinn

Irène Némirovsky: Frönsk svíta

Jóhann Hauksson: Samhengi hlutanna

Guðni Th. Jóhannesson: Gunnar Thoroddsen – ævisaga

Halldór Guðmundsson: Halldór Laxnes – ævisaga

Elín Hirst: Ekki líta undan

Jón Kalman Stefánsson: Hjarta mannsins

Ég veit að ég er að gleyma einhverjum bókum en þar sem þetta er hvergi skráð verður bara svo að vera.

Á liðnu ári fór ég þrisvar yfir hafið. Tvær vinnuferðir, sú fyrri á fund í Gautaborg í janúarlok. Tókst að fljúga ódýrt gegnum Stokkholm og heimsækja Signýju frænku. Alltaf gaman að koma við hjá henni. Seinni vinnuferðin var á ráðstefnu í Prag í byrjun maí. Gaman að koma til Prag en það skyggði þó á að ég var draghölt og stokkbólgin í hné.

Í júlí fórum við fjölskyldan ásamt tengdaföður mínum til Stokkholms og þaðan með ferju til Riga í Lettlandi. Á bakaleið stoppuðum við hjá Signýju frænku í Stokkholmi. Verulega skemmtileg ferð.

Sindri sonur minn kláraði stúdentspróf á árinu, það var reglulega ánægjulegt og fagnað með fjölskyldunni.

Við létum loks verða af því að láta smíða grindverk kringum garðinn og góðan pall. Þetta kláraðist reyndar ekki fyrr en undir haust og því náðum við ekki að njóta framkvæmdanna að fullu, það bíður góðviðrisdaga þessa árs.

Eins og sést á þessari upptalningu hefur verið í ýmsu að snúast, endanleiki lífsins minnt á sig, einnig að góð heilsa og gott líkamlegt form er ekki sjálfgefið. Þá er mikilvægt að kunna að njóta þess sem er. Því náði ég við fuglaskoðun og jurtasöfnun. Það er margt hægt að gera þó hreyfigetan minnki.

Það er varla að ég þori að setja mér markmið fyrir þetta ár, frekar hægt að tala um hvað mig langar…………Mig langar að fara í:

Vorgöngu með félögum mínum á alla Hrútfjallstinda. Þetta er allt að 20 tíma ganga.

Bakpokaferð um Hornstrandir með Ásdís, Ágústi og mögulega fleirum.

Margar gönguskíðaferðir, dagsferðir og lengri ferðir

Nýtt ár hefur byrjað vel, skíðaganga með Ásdísi um Hólmsheiði á nýársdag lofaði góðu. Fallegt veður og líkaminn í góðu standi.

Ég tek fagnandi móti nýju ári og óska vinum og ættingjum farsældar á komandi tímum.

Umhverfis Svartahnúksfjöll
Ég hef áður nefnt á þessari síðu að í mér búi sígauni. Það er svo sannarlega satt og rétt að því leitinu til að það skemmtilegasta sem ég geri er að ganga um með minn bakpoka, tjald og nesti til nokkurra daga og leggjast út. Sumar án þessa er ekki sumar í mínum huga. Þegar sól hækkar á lofti byrjar mig að dreyma að ég liggi í tjaldi og hlusti á niðinn í læknum, lúin eftir að hafa borið húsið mitt milli staða.

Eftir liðþófaaðgerð í vor var ég lengi efins um að þetta árið yrði nokkurt sumar. Margir vinir og ættingjar töldu glórulaust með öllu fyrir mig að þyngja mig enn frekar og þramma um fjöll með byrði. Ég á hins vegar góðan eiginmann sem var tilbúinn til að taka mestu byrðina á sig til að ég fengi mitt sumar. Þá var bara að koma sér í form. Ég tók nokkrar æfingar, fyrst á lág fell, síðan hærri fell, þá Esjan nokkrum sinnum og loks Helgrindur. Taldi mig útskrifaða.

Mánudaginn 18. júní var lagt af stað. Við vorum fjögur, ég, Darri og vinir okkar Finnur og Þórdís. Ferðinni var heitið inn í Álftavatnskróka, þangað sem við ókum á bíl. Þar öxluðum við byrðar okkar. Ég með dagpoka með fötunum mínum, dýnunni og svefnpokanum, Darri tók tjaldið, prímusinn, matinn og sitt prívatdót. Þetta var bara hans gjald fyrir að fá að hafa mig með!

Ferðinni var heitið upp með Syðri-Ófæru og inn í Strútslaug. Fyrst var að skoða steinbrúna yfir ána.

Leiðin liggur meðfram ánni sem flæðir þarna nokkuð ólíkindalega um. Þegar komið er upp að Eldgjá eru þarna nokkuð fagrir fossar. Þegar við fórum þarna um fyrir nokkrum árum var geysilega gott veður. Hópurinn var stór og mikið af krökkum með. Krakkarnir og nokkrir af þeim fullorðnu skelltu sér í hylinn og var það mikið fjör. Þetta er mér mjög minnisstætt og þegar við gengum þarna um í sumar lifnaði þessi minning í huga mér.

Við gengum síðan áfram meðfram norðurhlíð Svartahnúksfjalla og í Strútslaug. Áður en að Strútslaug kom mætti okkur Hólmsáin. Hún rennur meðfram Strútslaug og er nokkuð vatnsmikil og straumhörð. Við tókum stefnuna niður með ánni en þá tók fólk á tjaldsvæðinu að veifa ákaft til okkar og benti okkur á stiga sem var lagður yfir ána heldur ofar. Ekki leist mér nú alls kostar vel á að klöngrast þar yfir en lét mig þó hafa það.

Á tjaldsvæðinu voru þrjú tjöld, einn túristi í hverju. Allt útlendingar. Við ræddum aðeins við tvo af þeim, bæði Þjóðverjar. Þau höfðu oft komið til Íslands og verið í bakpokaferðum. Þetta var hins vegar í fyrsta skipti sem þau hittu Íslendinga með bakpoka og tjald. Þeirra hugmyndir um Íslendinga voru að þeir vildu meiri þægindi, fellihýsi og jeppa.

Við helguðum okkur smá skika og slógum upp tjöldum. Þega kom að því að hita vatn komumst við Darri að því að heldur hafði okkur orðið á í messunni. Prímusinn okkar skrúfast á gaskútinn. Gaskúturinn sem við tókum með var hins vegar gerður fyrir smelluprímus. Frekar bagalegt. Eiginlega bara alveg kolómögulegt. Ef við hefðum verið ein á ferð hefði kvöldmaturinn verið heldur snautlegur. Finnur og Þórdís voru með eins prímus og lofuðu okkur aðgengi að sínu gasi. Aulaskapur í þessum efnum getur farið illa með mann langt frá mannabyggðum.

Eftir kvöldmatinn var Strútslaugin prófuð. Laugin er tvískipt, í efri hlutann rennur allheitur lækur. Sú laug er alltof heit til að dýfa sér í. Úr henni rennur svo yfirborðsvatnið í neðri laugina sem einnig er nokkuð heit en þó ekki svo að það má harka það af sér og sitja þar dágóða stund. Laugin er hins vegar allleirug en ef maður er tilbúinn til að líta framhjá því er hægt að eiga þarna góða slökunarstund.

Daginn eftir var ferðinni heitið upp á Torfajökul. Enn ber hann nafnið “jökull” og líklegt að það muni áfram haldast sem örnefni. Leyfi ég mér að efast um að þetta kallist jökull ennþá. Þarna eru að vísu snjóskaflar sem ekki ná að fara yfir sumartímann, jöklalegt var þetta ekki. Upp frá Strútslaug liggur stígur upp á jökulinn og í góðu skyggni eins og var þennan dag er auðvelt að finna leið upp á hæsta tindinn. Þarna er ægifagurt útsýni yfir á Mýrdalsjökul, Mælifellssand, Kaldaklofsfjöllin og Torfajökulsöskjuna alla. Litadýrðin er svakaleg og klárlega fer þetta á listann yfir flottustu útsýnisstaðina sem ég hef komið á.

Þegar við höfðum dáðst nægju okkar að útsýninu og fengið okkur snarl, snerum við niður. Þau sem sprækari voru vildu taka lengri hring og fara niður að austanverðu og skoða fjallið Strút. Ég ákvað að taka skynsemina á þetta og fór sömu leið til baka. Þó löppin væri í góðu standi var óþarfi að ofbjóða henni.

Ég kom mér vel fyrir í sólinni þegar niður kom. Fljótlega kem ég auga á göngumann sem greinilega var að leita sér að tjaldsvæði. Hann byrjar að tjalda rétt hjá mér og ég fer að spjalla við hann. Þetta reyndist vera Frakki, einn á ferð. Hann var í sinni 16. ferð til Íslands, þeirri 14. með bakpoka að ráfa um óbyggðir. Aftur var ég fyrsti Íslendingurinn með göngutjald sem hann hitti. Íslendingar vilja meiri þægindi fullyrti hann. Hann var búinn að vera rúmar tvær vikur á ferðalagi og ætlaði að reyna að vera a.m.k. eina viku til viðbótar. Hann lagði af stað með ca 35 kg í bakpokanum, tók rútuna í Landmannahelli og var búinn að vera á ráfi þaðan. Hann líkti sér við kindurnar, þær koma með trukkum ínn á fjöllin, hann með rútu. Sjálfum líður honum eins og kindunum þegar þeim er sleppt út í víðáttuna og frelsið á sumrin sagði hann. Mikið skildi ég hann, sjálfri langar mig einmitt að gera þetta, ráfa um hálendið með vistir til lengri tíma.

Eftir að hafa röflað dágóða stund við Frakkann fór ég í laugina og síðan kúrði ég mig í svefnpokann. Þau hin komu nokkru síðar, alsæl eftir könnunarleiðangur kringum fjallið Strút.

Daginn eftir tókum við upp tjöldin og öllu pakkað. Nú var ferðinni heitið meðfram Hólmsárlóni að suðvestanverðu. Ekki gátum við séð að það væri fært meðfram lóninu hinu megin en þarna var vel fært. Minnti þessi ganga örlítið á gönguna meðfram Langasjó.

Við enda Hólmsár er Hólmsárfoss, nokkuð fagur.

Nú var komið að því að vaða Hólmsána. Við höfðum stuðst við leiðarlýsingu Páls Ásgeirs í bókinni “Bill og bakpoki”. Ekki gátum við alveg ráðið miðað við bókina hvar best væri að vaða. Áin er nokkuð vatnsmikil og straumhörð þarna. Við afréðum að láta reyna á að vaða rétt neðan við Rauðabotn, í beygju þar, rétt ofan við flúðir. Gekk það bara ágætlega.

Nú lá leið okkar í suðaustanverðum Svartahnúksfjöllum. Líklega höfum við farið full ofarlega til að byrja með, beygt of snemma til norðausturs. Þurftum við að þræða yfir nokkur gil sem við mögulega hefðum sloppið við ef við hefðum haldið okkur neðar til að byrja með, þó er ég ekki viss um það. Alls voru það líklega ekki nema þrjú gil sem við klöngruðumst yfir, það seinasta var dýpst og ansi bratt.

Í sjálfu sér er fullfrísku fólki þetta ekki nokkur vorkunn en ég hef grun um að hnéð á mér hafi ekki haft mjög gott af þessari meðferð. Síðar um daginn náði ég svo að skrika aðeins til fótur. Nánast á sama hátt og þegar ég slasaði mig í vetur. Hægri fóturinn rann til hliðar í bröttu móbergi og sá vinstri bögglaðist undir mér til hliðar. Þannig rifnaði liðþófinn í vetur og nú gerðist aftur það sama. Ég fann nokkuð til fyrst en svo jafnaði ég mig. Alveg eins og í vetur. Ekki fannst mér þetta vita á gott en áfram skrölti ég þó, skíthrædd um að hafa skemmt eitthvað.

Áfangastaðurinn var Áltavatnskrókar. Þar slógum við upp tjöldum og gasleysi okkar kom ekki lengur að sök því í bílnum var meira gas. Hringnum var semsagt lokað.

Daginn eftir var löppin verkjalaus en hnéð aðeins bólgið því bauðst ég til að taka bílinn, þau hin gengu hins vegar niður í Hólaskjól.

Þessari leið er eins og ég sagði áður, lýst í bók Páls Ásgeirs, “Bíll og bakpoki”. Þar er reyndar bara gert ráð fyrir tveimur göngudögum en okkur fannst upplagt að vera tvær nætur við Strútslaug og ganga á Torfajökul. Einnig var nokkuð rakið að rölta seinasta daginn niður í Hólaskjól, einkum þar sem fótafúinn bílstjóri var til staðar.

Fyrsta dagleiðin var um 13km, seinasta um 18km. Ég veit ekki hversu gangan um Torfajökulinn var löng.

Þessi ganga bjargaði geðheilsu minni þetta árið. Það getur vel verið að bataferill blessaða hnésins hafi verið truflaður, það gerir bara ekkert til, það þarf líka að hugsa um andlega líðan.

Aftur með!
Seinustu tíu ár hefur hlaupaklúbbur Seltjarnarness átt ríkan sess í huga mér og ómældur tími farið í hlaup, göngur og annað aktívitet tengt þessum klúbbi. Nú í nánast heilt ár hef ég lítið getað fylgt félögum mínum eftir. Það þarf náttúrulega ekkert að orðlengja það hversu illa mér hefur líkað að komast ekki út að hreyfa mig almennilega. Var ég á tímabili farin að halda að nú væri kominn tími á blómaskoðun, fuglaskoðun og jafnvel ljósmyndun.

Eftir liðþófaðagerð og massíva endurhæfingu hjá sjúkraþjálfara er ég mætt aftur. Fyrsti hlaupatíminn var í gær og gekk bara þokkalega. 5km lágu að baki, reyndar farið afar hægt og gekk ég inn á milli.

Nokkrar fjallgöngur hef ég farið í nú undanfarið og allt gengið að óskum. Þannig að ég er mætt aftur og hef tekið gleði mína á ný! Af þessu tilefni tók ég aftur upp tölvuna og skellti inn nýju bloggi. Það er orðið alltof langt frá seinustu færslu og ferðasaga frá því í sumar bíður birtingar!

Heiðarleiki, óreiðumenn og áhættusækni
Nokkur atriði hafa verið mér hugleikin undanfarinna daga. Hér með er þeim komið á framfæri.

1. Heiðarleiki

Fyrir tveimur árum var haldinn þjóðfundur í Laugardagshöll. Ef ég man rétt voru þar samankomin tæplega eittþúsund manns. Mörgum fannst þetta merkilegt framtak, þarna átti að vera þverskurður þjóðarinnar. Á þessum fundi setti fólk niður þau gildi sem það vildi að væru leiðarljós þjóðarinnar út úr þessari kreppu (efnahagslegri, stjórnmálalegri o. s. frv). Það gildi sem skoraði hæst var “heiðarleiki”.

Hvað er heiðarleiki?

Er það ekki að standa við orð sín? Ekki einvörðungu niðurneglda margvottaða samninga, heldur einnig það sem er handsalað.

Er það ekki að gera öðrum mönnum það sem maður myndi vilja að þeir geri manni sjálfum?

Er það ekki að fara eftir þeim reglum sem búið er að setja í samfélagi okkar, skrifuðum sem óskrifuðum?

Hvernig rímar þetta við það að íslensk stjórnvöld hafa frá upphafi sagt að við ætlum að borga þetta Icesave, það þyrfti bara að semja um greiðslukjörin. Nú vill heiðarlega þjóðin ekki kannast við þetta og segja nei.

Hvað hefðum við sagt ef Bretar eða Hollendingar hefðu sett upp sambærilega innlánsreikninga hér á landi, reikninga sem lutu eftirliti þeirra. Svo hefði þessi banki farið á hausinn og þeir borgað innlán í sínum löndum en ekki hér? Við þessi heiðarlega þjóð hefði farið af límingunum.

2. Óreiðumenn

Við borgum ekki skuldir óreiðumanna. Þetta er ekki mín skuld. Ég skrifaði aldrei undir þessa skuld.

Þetta eru algengustu rök NEI sinna í Icesave.

Það einkennilega við þessi rök er að margir af þeim sem halda þessu fram voru hvað ákafastir talsmenn í þess að færa niður húsnæðisskuldir landsmanna. Þegar slíkt er gert lendir skuldin einhversstaðar annars staðar, einhverjir aðrir áttu að taka á sig tapið, þrátt fyrir að hafa aldrei skrifað undir skuldaviðurkenningu.

Mér nægir að nefna tvö nöfn í þessu samhengi: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Lilja Mósesdóttir.

Hvorugt vill borga Icesave, með því væri verið að borga skuldir óreiðumanna, báðum fannst sjálfsagt að færa niður húsnædisskuldir, láta þær lenda á öðrum.

3. Áhættusækni

Það var áhættusækni íslenskra bankamanna sem kom okkur í þá stöðu sem við erum í dag. Íslenskur almenningur  tók gengislán eins og enginn væri morgundagurinn og kom mörgum í erfiða skuldasúpu. Stöðu sem margir sjá ekki leið út úr. Slíkt var áhættusækni því fólki átti að vera ljóst að gengið sem lánin voru tekin á var ekki líkegt til að standa að eilífu.

Þessi sama áhættusækni rekur margan til að segja NEI í kosningunum í dag. Spurningin sem við svörum í dag er nefnilega ekki hvort við viljum við borga. Spurningin er miklu frekar hvort við séum tilbúin til að taka áhættu á að tapa dómsmáli.

Þeir sem segja nei í dag vilja taka þá áhættu. Því gæti fylgt margfalt hærri kröfur en við stöndum frammi fyrir í dag, hærri vextir, stöðnun til lengri tíma og einangrun.

Ef meirihluti þjóðarinnar velur þessa leið er ekki við vonda stjórnmálamenn að sakast. Þjóðin velur.

Ný áhugamál
Fyrir þetta ár hef ég átt mér nokkur markmið. Þau snúa flest að útivist og hreyfingu. Nokkrar bakbokaferðir voru á teikniborðinu og einnig löng og erfið ferð um Öræfajökul.

En markmið verða að vera raunhæf. Nú verð ég að játa mig sigraða í þessum efnum……..í bili að minnsta kosti.

Sannleikurinn er sá að ég hef kennt mér meins í hné frá því í október sl. Ég hef ákaft talið mér trú um að þetta sé alveg að lagast. Jafnóðum og ég held ég sé að skána og ég fer aðeins að auka hreyfingu er mér ávallt kippt aftur á byrjunarreit.

Um miðjan mars nennti ég þessu gutli ekki lengur, 19 km skíðaganga um Hellisheiði og Hengilsvæði skyldi það vera. Ég náði því að hrasa illa og sit uppi með stokkbólgið hné. Nú er ég endanlega búin að gefa upp vonina um að löppin lagist að sjálfu sér.

Nú verða doktorar settir í málið og það er líklegra en ekki að bataferlið muni taka mánuði.

Líklega verð ég að taka upp ný áhugamál. Fuglaskoðun og ljósmyndun koma sterklega til greina. Fyrsti í fulgaskoðun var í dag og hafði ég bara nokkuð gaman af.

Eftirtaldar tegundir sá ég:

Snoppa:

Æðarfugl (nóg af honum)

Sendlingur

Tjaldur

Tildra

Bakkatjörn

Grágæs (nóg af henni)

Álft (nóg af henni)

Stokkönd (nóg af henni)

Rauðhöfðaönd

Toppönd

Skúfönd

Tildra

Sílamávur

Stormmávur (ekki alveg viss)

Hettumávur

Seltjörn

Æðarfugl

Hávella

Toppönd (ekki alveg viss)

Fjaran austan við golfvöllinn

Margæsir (í hóp)

Fjölbreytnin kom skemmtilega á óvart, hversu margoft hef ég ekki hlaupið þarna um án þess að taka eftir öllum þessum tegundum? Nú skal aðeins róa sig niður og beita athyglinni.

Litið um öxl
Árið 2010 var mér á margan hátt viðburðaríkt og á flestan hátt hið ánægjulegasta. Þessum annál ætla ég að kaflaskifta til að auðvelda yfirferðina.

Gönguferðir

Um nokkurra ára skeið hafa gönguferðir verið mitt helsta áhugamál og ársins 2010 mun ég líklega helst minnast sem góðs gönguárs. Göngurnar sem ég fór á árinu eru ótalmargar, bæði lengri og styttri. Stærsta takmark mitt fyrir sumarið var að komast á Sveinstind í Öræfajökli og til að vinna að því takmarki fór ég í margar dags og kvöldgöngur sem eru taldar upp neðst í þessum annál. Sveinstindur sjálfur var sigraður þann 19. júní í góðra vina hópi. Ferðin á Sveinstind er örugglega sú erfiðasta ganga sem ég hef farið en þökk sé góðum undirbúningi þá gekk allt vel og upplifunin og ævintýrið að fara þarna er ólýsanlegt.

Ársins 2010 minnist ég ekki síður vegna skemmtilegra lengri gönguferða. Í sumar sem leið fór ég í þrjár nokkurra daga bakpokaferðir. Fyrstu ferðina fórum við Darri í júnílok með vinum okkar Ásdísi og Ágústi. Með þeim gengum við um Hornstrandir í fimm daga. Fórum við á Hesteyri, þaðan í Aðalvík, á Straumnesfjall, yfir í Fljótavík, um Almenninga eystri í Kjaransvík og Hlöðuvík og síðan aftur að Hesteyri. Fengum við allan tímann yndislegt veður og ferðin öll var afskaplega vel heppnuð.

Um miðjan júlí fórum við með nokkrum vinum okkar úr TKS úr Núpsstaðaskógi í Skaftafell. Leifur Örn Svavarsson fjallaleiðsögumaður leiddi okkur um svæðið og yfir Skeiðarárjökul af stakri snilld. Þetta var ógleymanleg ferð og þarna er náttúrufegurðin slík að hástig lýsingarorða dugar ekki til.

Seinasta gangan var með góðum vinum okkar úr TKS þeim Þóru og Palla. Fórum við frá Grenivík og út með Látraströnd, yfir Uxaskarð og yfir í Keflavík og þaðan í Þorgeirsfjörð og yfir í Hvalvatnsfjörð, þaðan um Trölladal yfir að Grenivík aftur, með viðkomu á Kaldbak. Fyrri hluti þessarar göngu var drungalegur sökum þoku en síðan birti til þegar sólin bræddi þokuna. Þetta er þriðja sumarið sem við göngum með Þóru og Palla, allt ákaflega ánægjulegar stundir sem við minnumst með mikilli gleði. Nú seinni hluta árs veiktist Palli og var hann allur áður en árinu lauk. Ég minnist hans sem sérstaklega þægilegs göngufélaga og sakna hans sem slíks. Missir Þóru er mikill og hugur minn og félaga okkar í TKS er hjá henni þessa dagana.

Bókalestur

Í upphafi árs tókst mér að rífa mig frá tölvuskjánum og þeirri netdellu sem ég var orðin ánetjuð. Ég skráði mig á námskeið hjá Endurmenntunarstofnun HÍ þar sem nýútkomnar jólabækur voru til umfjöllunar. Þetta var ágætlega skemmtilegt og hafði ég það af á þessu ári að lesa margar bækur, bæði í tengslum við þetta námskeið og einnig utan þess. Þessa árs minnist ég sem bókadelluárs. Neðst í þessum annál er yfirlit yfir þær bækur sem ég las á árinu. Má vera að ég gleymi einhverju en það verður þá bara svo að vera.

Framkvæmdir

Við hjónin verðum seint talin framkvæmdasöm, ekki heldur að hafa gleymt okkur í kapphlaupi um að eiga mesta fíneríið innanhúss árið 2007. Eldhúsið okkar þarfnaðist endurbóta þegar við keyptum núverandi húsnæði árið 1998 og fataskápurinn okkar í svefnherberginu varð fyrir rakaskemmdum árið 2007. Við komum okkur aldrei að því að gera nokkuð í málinu fyrr en nú enda kominn tími til. Um miðjan júlí fluttum við nánast út úr helmingnum af húsinu þ.e. eldhúsi, þvottahúsi, stofu og holi. Veggur var rifinn, gólfefni fór á haugana og eldhúsinnrétting og eldhúsloft sömuleiðis. Síðan hófst uppbygging og var framkvæmdum formlega lokið í byrjun nóvember. Mér finnst við hafa eignast nýtt hús og er alsæl með niðurstöðuna, gáttuð á að hafa ekki drifið í þessu fyrr en samt hæstánægð því  þá hefðum við ekki gert þetta á þennan hátt og líklega ekki farið út í svona miklar framkvæmdir.

Ferðalög

Með hverju árinu sem líður vaxa börnin frá okkur og erfiðara að finna tíma sem öllum hentar til að ferðast saman. Okkur tókst samt að fara saman til New York í apríl og var Manhattan tekin með trompi. Þar var fátt okkur óviðkomandi, við gengum um borgina og skoðuðum margt, fórum í Empire State, siglingu meðfram Manhattan, skoðuðum NBC studio, fórum á The Body Museum, hjóluðum um Central Park, karlpeningurinn fór á safn með herskipum, herflugvélum og slíku og svo var aðeins kíkt í búðir og verslað.

Í lok september fórum við Darri til Berlínar. Aðalerindið var að hann hljóp þar maraþon ásamt nokkrum öðrum félögum okkar í TKS. Hann náði sínum besta tíma og var alsæll. Meðan hlaupararnir spöruðu á sér fæturna daginn fyrir hlaupið leigðum við Raggý (sem einnig er gift forföllnum langhlaupara) okkur reiðhjól og skoðum borgina. Berlín er mjög svo áhugaverð borg og þar er margt að skoða.

Íþróttaafrek

Fyrir utan gönguafrek mun ég minnast þessa árs fyrir tvenn íþróttaafrek. Í Reykjavíkurmaraþoninu hljóp ég hálft maraþon á tímanum 2:12:22. Í Powerade hlaupi í byrjun oktober hljóp ég 10 km á tímanum 59:27 sem er minn næstbesti tími í 10 km hlaupi en geta má þess að brautin í Elliðaárdalnum er mjög hæðótt. Telst hvorugt svosem enginn afrekstími svona almennt en fyrir mér er þetta frábært og er ég mjög stolt af þessum tímum. Var ég svo brött og almennt í góðu líkamlegu formi þetta árið að ég leyfi mér að fullyrða að ég hafi aldrei áður verið betur á mig komin líkamlega. Stórkostlegt að geta sagt þetta núna þegar ég er 46 ára gömul.

Félagsmál

Ásamt góðri hjálp stóð ég fyrir tveimur samkomum sem eru mér minnisstæðar á árinu. Í febrúar komu frændsystkini mín í föðurætt saman hér heima hjá mér og við gæddum okkur á fiskisúpu sem við Erla frænka mín elduðum. Reglulega skemmtilegt kvöld sem gaman væri að endurtaka.

Í nóvember komu saman hér heima hjá mér bekkjarsystkini mín úr Laugargerðisskóla í tilefni þess að 30 ár eru liðin frá lokum grunnskóla. Okkur fannst við náttúrulega ekkert hafa elst og svo sannarlega var gaman að endurnýja kynnin.

Prjónadella

Ég má til að telja upp enn eina delluna sem ég tók á árinu. Það er prjónadella. Afrekaði ég að prjóna barnafatasett, peysu, húfu, buxur og sokka á Bjarna Frey frænda minn sem fæddist 21. júlí. Þetta setti mig í mikið prjónastuð og á meðan hér var allt í rúst heima hjá mér vegna framkvæmda náði ég að prjóna þrjár lopapeysur. Síðar prjónaði ég lopasmekkbuxur á sjóbjörgunarsveitamanninn á heimilinu. Veit ég ekki betur en þær séu hinar hlýjustu. Í árslok prjónaði ég svo nokkur vettlingapör úr afgöngum. Þessi della er bara skemmtileg og svo mikið er víst að listinn yfir flíkur sem mig langar að prjóna vex og vex.

Að lokum

Árið 2010 var mér gott. Ég hef verið heilsuhraust og getað stundað útivist og hreyfingu sem aldrei fyrr. Ég á heilbrigð börn sem gengur vel í því sem þau taka sér fyrir hendur, á góðan eiginmann sem stundar sömu áhugamál og ég en það tel ég mikils virði. Ég er í góðri vinnu og líkar vel það sem ég vinn við.

Við tímamót sem áramót eru er mikilvægt að staldra við og hugsa til alls þess sem við höfum og þakka fyrir því það er alls ekki sjálfgefið að allt gangi vel.

Á nýju ári á ég mér nokkur markmið. Umfjöllun um það bíður betri tíma.

Ég þakka lesendum mínum fyrir þolinmæði, ég skrifa fyrst of fremst fyrir mig en ég myndi ekki birta þetta ef ég vildi ekki að þetta væri lesið. Ég óska öllum ættingjum, vinum, kunningjum og öðrum sem rekast hér á þessa síðu farsældar á nýju ári og þakka fyrir allt gamalt og gott.

“Afrekslisti”

Dags- og kvöldgöngur voru þessar helstar:

Janúar – Reykjadalur og Ölkelduháls í janúarbyrjun

Febrúar – Hengillinn

Mars – Frá Skógum að eldstöðvunum Fimmvörðuhálsi og til baka að Skógum

Apríl – http://bubot.wordpress.com/2010/04/04/eldgosasko%c3%b0un/

Maí – Móskarðshnjúkar, Grímmannsfell, Brennisteinsfjöll, Geitafell, Smáþúfur í Esju, Skarðheiði

Júní – Smáþúfur og niður hjá Esjubergi, uppað Steini í Esju, Tröllakirkja og Smjörhnjúkar Hítardal, Ingólfsfjall, Hátindur Esju, Sveinstindur Öræfajökli

Júlí – Fimmvörðuháls, Útigönguhöfði, Blikdalshringur Esju

Nóvember – Gönguskíðahringur í Bláfjöllum

Bækur lesnar á árinu:

Enn er morgun – Böðvar Guðmundsson

Góði elskhuginn – Steinunn Sigurðardóttir

Karlsvagninn – Krisín Marja Baldursdóttir

Bankster – Guðmundur Óskarsson

Í fátæktarlandi ævisaga Þórbergs Þórðarsonar, fyrri hluti – Pétur Gunnarsson

Í forheimskunarlandi ævisaga Þórbergs Þórðarsonar, seinni hluti – Pétur Gunnarsson

Harmur englanna – Jón Kalman Stefánsson

Himnaríki og Helvíti – Jón Kalman Stefánsson

Hyldýpi – Stefán Máni

Auður - Vilborg Davíðsdóttir

Alltaf sama sagan – Þórarinn Eldjárn

Svörtuloft -Arnaldur Indriðason

Rauðbrystingur – Jo Nesbö

Morgnar í Jenin – Susan Abulhawa

Myrká – Arnaldur Indriðason

Snjóblinda – Ragnar Jónasson

Furðustrandir – Arnaldur Indriðason

Ljósa – Kristín Steinsdóttir

Aumasta trúin…….sem ég aðhyllist
Ég skoða öðru hvoru vefsíðu vantrúar (vantru.is). Þar kemur stundum ýmislegt fram sem mér finnst áhugavert. Í dag var þar vakin athygli á orðum sem Örn Bárður Jónsson viðhafði í útvarpsviðtali. Orðin eru í takt við það sem ég hef verið að gagnrýna undanfarna daga. Hrokinn leynir sér ekki og fullvissan um að hann og aðrir kristinnar trúar séu öðrum fremri leynir sér ekki. Fyrirlitningu hafði hann á þeim sem hafna trú á alvitran guð en vilja frekar treysta á vísindi og húmanisma.

Þetta er örstuttur viðtalsbútur, tæplega hálf mínúta. Ég mæli með að fólk hlusti á þetta.

Fyrir þá sem ekki nenna að smella á þetta þá segir klerkurinn:

“Meðan stjórnarskráin segir að kristni skuli vera ríkjandi skulum við virða það”

Bíðum við, ríkir ekki trúfrelsi? Stendur í stjórnarskránni að kristni skuli vera ríkjandi? Vissulega er talað um þjóðkirkju en á að grípa til einhverra ráðstafana ef fólki innan hennar fækkar?

“Viljum við fá vísindahyggju, guðlausa vísindahyggju? Haldiði að það verði eitthvað betra?”

Já það væri nú agalegt ef við færum að láta vísindin hafa einhver áhrif á líf okkar og fara eftir vísindalegum niðurstöðum. Þá fyrst væri hætta á fáfræði og andlegri örbirgð!

“Eða trúna á manninn, það er aumasta trú sem til er”.

Ég tel að maðurinn sjálfur ráði mestu um sig og örlög sín, hvernig við bregðumst hverju sinni við atburðum í lífi okkar er á okkar valdi. Ég trúi á hið góða í manninum og að okkur beri að rækta það. Að því leyti þá má segja að ég trúi á manninn. Nú veit ég að þessum presti þykir það aumasta trú sem til er. Enda bara vont og trúlaust fólk sem lætur sér detta svona vitleysa í hug.

Hvernig haldið þið að börnum sem ekki aðhyllast trúna á alvitran guð sem krukkar í lífið okkar og stöðugt dæmir okkur, líði eftir að koma í kirkju ef þetta eru skilaboðin?

Er þetta umburðarlyndi og virðing?

Eða er þetta kannski kristilegt siðgæði?

Kirkja og skóli
Af umræðu undanfarinna daga hef ég séð að margir skilja ekki þörfina fyrir skýrari mörkum milli kirkju og skóla. Þetta er í raun eðlilegt þar sem margumræddur meirihluti þjóðarinnar (ca 80%) tilheyrir þjóðkirkjunni og um 10% til viðbótar einhverjum öðrum kristnum söfnuðum. Þar með er þó alls ekki sagt að þessi 90% séu trúuð en hægt er að gera ráð fyrir að þetta fólk sé a.m.k. frekar jákvætt gagnvart kristinni trú.

Víkjum þá að margumræddum minnihluta sem margir telja óþarft að taka tillit til. Þar getur verið um að ræða meðlimi annarra trúfélaga eða fólk utan trúfélaga. Algeng bekkjarstærð er í kringum 20 börn. Miðað við ofangreindar tölur má búast við að meðaltali að 2 börn í hverjum bekk falli undir þessa skilgreiningu. Hvernig hefur í skólastarfi verið brotið á réttindum þessara barna?

Sumir kennarar líta á það sem hlutverk sitt að kenna börnunum að fara með bænir. Fljótt á litið hljómar það saklaust og algengt er að heyra rökin um að það skaði nú engann að fara með bænir. Málið snýst bara ekki um það. Málið snýst um að verið er að þvinga börn sem ekki eru alin upp í trú til að spenna greipar og fara með þulu án þess að hugur fylgi máli. Þau eru látin þykjast trúa án þess að gera það. Þá eru allir glaðir. Ég hef verið spurð hvað sé athugavert við það, hin börnin trúi ekki heldur. Jú, það sem er athugavert eru  skilaboðin sem felast í því að það sé í lagi að hugur fylgi ekki máli.

Í sumum skólum tíðkast að prestar komi inn í kennslustund að hausti hjá fermingarárgangi. Þar útdeilir hann viðtalstímum til þeirra sem ætla að fermast. Þetta er óeðlilegt þar sem þarna er klárlega um trúboð að ræða og þau börn sem ekki vilja þiggja viðtalstímana þurfa að gera það fyrir framan allan bekkinn. Ég hef verið spurð hvort þau geti bara ekki tekið tímann og sleppt því að mæta ef þau vilji ekki að bekkurinn viti að þau ætli ekki að fermast. Málið snýst ekki um það, slíkt væri aftur skilaboð um að í lagi væri að vera með sýndarmennsku. Þar til viðbótar er ekki hægt í 20 manna bekk að halda því leyndu að viðkomandi ætli ekki að fermast. Málið snýst um að verið er að ota einni lífsskoðun að börnunum og hampa henni sem “þeirri réttustu” umfram aðrar. Veit ég dæmi um verulega ýtni prests sem virti ekki kurteislega neitun barns og fór fram á að barnið ræddi þetta betur við foreldra sína. Stofnun sem ekki skilur hvar mörkin eru hvað þetta varðar verður að setja skýr mörk.

Á aðventunni hefur tíðkast í mörgum skólum að fara til kirkju einn eftirmiðdag. Slíkar kirkjuheimsóknir hafa oft ekki verið valkvæðar heldur skulu allir fara. Líka þessi 2 börn í hverjum bekk sem ekki játa kristna trú. Í fljótu bragði virðist þetta vitameinlaust en þetta snýst ekki um hvort eitthvert barnið verður fyrir skaða af slíkri heimsókn heldur að virðing sé borin fyrir öðrum lífsskoðunum. Börnin mín upplifðu það sem virðingarleysi við þeirra trúarafstöðu að vera skikkuð í þessar heimsóknir. Stundum hringdum við og báðum um leyfi, einhvern tíma gleymdist það og þá stakk einhver kennarinn upp á því að barnið skrópaði bara svo lítið bæri á. Enn komum við að þessum einkennilegu skilaboðum um að það sé betra fyrir skólann að barnið laumist í burtu en að bjóða upp á annan valkost.

Dóttir mín mótmælti eitt sinn kröftuglega í sínum skóla þegar átti að skikka hana í kirkjuferð fyrir jól. Ekki vegna þess að hún teldi sig bera skaða af kirkjuferðinni, hún vildi einfaldlega að skólinn virti hennar trúleysi og skikkaði hana ekki til að taka þátt í bænahaldi. Þessar kirjuferðir eru ekki skoðunarferðir eins og stundum er haldið fram, þær eru trúarathafnir og það getur ekki samræmst kristinni trú að þvinga börn til þátttöku í þeim. Framhaldsskólanemar eru aldrei þvingaðir til að taka þátt í trúarathöfnum, ekki þekkist að á vinnustöðum sé fólk þvingað til þátttöku í bænahaldi eða kirkjuferðum. Það  getur því ekki verið réttlætanlegt að þvinga grunnskólabörn eða leikskólabörn til slíkra athafna.

Ég er eitt af þeim foreldrum sem vildi lítið andæfa gegn meirihlutanum sem meinar að þetta geti nú ekki skaðað neinn. Eftir að mín börn eru orðin fullorðin hafa þau sagt mér frá ýmsum uppákomum í skólagöngunni þar sem þau hafa verið skikkuð til trúarlega athafna gegn sínum vilja, fengið athugasemdir frá nemendum og kennurum vegna lífsskoðana sinna og upplifað að trúleysi þeirra sé ekki virt.

Það eru mannréttindi að fá að vera trúlaus og þau mannréttindi ber að virða. Líka hjá börnum. Þessi réttindi hefur kirkjan og oft á tíðum einnig skólinn ekki virt nú seinustu ár. Því er nauðsynlegt að setja skýr mörk þarna á milli.

Kristilegt siðgæði
Í umræðum manna á meðal er látið að því liggja að kristilegt siðgæði sé eitthvað sem ákjósanlegt sé að við tileinkum okkur. Hvað í þessu hugtaki felst er mér ekki alltaf að fullu ljóst en ég neita að viðurkenna að fyrirfram hafi þeir sem aðhyllast kristna trú sjálfkrafa eitthvað betra siðgæði en þeir sem aðhyllast önnur trúarbrögð eða standa utan trúfélaga.

Því miður hafa kirkjunnar þjónar rekið þennan áróður með afar lævísum hætti og heppnast það vel, að í umræðunni manna á meðal kemur of oft upp sú hugmynd að “heiðingjar hafi verra siðgæði en aðrir” (Guðni Ágústsson Kastljós 12. des 2007). Biskup bætti um betur á þessum tíma (des 2007) og sagði Siðmennt vera hatrömm samtök þar sem þau fóru fram á að greinarmunur væri gerður á sagnfræði og goðsögnum í kennslustundum. Nú seinast toppaði biskup sjálfan sig þar sem hann sagði eftirfarandi í sunnudagspredikun:

„Trúfrelsi er skilgreint sem útilokun trúar frá hinu opinbera rými, uppeldi og kennslu. Sem mun þó einungis stuðla að fáfræði, fordómum og andlegri örbirgð.“

Dæmin eru fleiri en boðskapurinn er augljós: Við (kristnir) erum ykkur (trúlausir, önnur trúfélög) fremri. Ekki bara fremri heldur BETRI. Með mærðarlegum og smjaðurslegum tón er þetta endurtekið af framámönnum kirkjunnar. Í sömu andrá er hamrað á umburðarlyndi, góðmennsku og því hversu mikla virðingu kirkjan beri fyrir öllum mönnum.

Skal það hér viðurkennt að þessi áróður síaðist svo inn í mig að það tók mig mörg ár að viðurkenna trúleysi mitt. Bæði fyrir sjálfri mér og ekki síður fyrir öðrum. Á ég jafnvel enn þann dag í dag erfitt með það gagnvart ættingjum mínum þar sem tilfinningin er oft að ég sé að játa á mig vont siðgæði og illan hug gagnvart öðrum mönnum. Í mörg ár reyndi ég að halda því fram að það að trúa á guð væri það sama og að trúa á það góða í manninum og rækta það með sjálfum sér. Dóttir mín var ekki ánægð með þetta svar og margbenti mér á að það væri alveg hægt að gera það og sleppa guði. Svo sannarlega er það hægt, eiginlega er bara mikill léttir að sleppa honum.

Þegar fólki með sömu lífsskoðanir og ég er borið á brýn að vera hatrömm, með vont siðgæði og hætta sé á andlegri örbirgð ef við slítum okkur frá trúnni þá eru það grafalvarlegar ásakanir frá framámönnum þjóðarinnar. Höfum í huga að þetta eru ekki bara einhverjir bloggsíðugjammarar, þetta er m.a. forsvarsmaður trúfélagsins sem vill að kristilegt siðgæði sé leiðandi í okkar samfélagi. Það sem felst í þessum ásökunum ber ekki vott um umburðarlyndi eða virðingu og er klárlega ekki það siðgæði sem ég áður hélt að kirkjan stæði fyrir. Þetta siðgæði má biskupinn eiga sjálfur.

Kjarkur gegn sjálfhverfri kirkju
Samþykkt mannréttindaráðs Reykjavíkur um að takmarka aðkomu trúfélaga að skólastarfi ber vott um mikinn kjark þeirra sem þetta samþykktu. Af hverju segi ég kjark? Jú, það er vegna þess að þarna er verið að stoppa af stofnun sem hefur hingað til í krafti fjöldahreyfingar getað leyft sér að hunsa algerlega vilja og þarfir þeirra sem hafa aðra trú eða enga.

Í þessari baráttu sinni er kirkjan svo sjálfhverf að mig setur nánast hljóða. Biskupinn opinberaði þetta á sinn mærðarfulla hátt í predikun í dag. Í predikuninni er aðalinntakið hversu mikilvægt það sé að enginn fari á mis við boðskap kristinnar trúar, hvort sem okkur líkar það betur eða verr, með góðu eða illu. Svo mikilvægur er hann. Ég trúi því algerlega að þetta sé einlæg skoðun og trú biskupsins ásamt fjölda annarra enda er boðun trúarinnar eitt mikilvægasta hlutverk þjóna kirkjunnar. Fullvissa þessa fólks er slík að þeim er fyrirmunað að skilja að það sé til fólk sem telji sig geta lifað góðu lífi án þess trúa á Jesú Krist sem getinn var af heilögum anda, fæddur af hreinni mey, reis upp frá dauðum, steig upp til himna og dæmir þar lifendur og dauða.

Þessi hópur fólks á jafnframt erfitt með að átta sig á að Kristin trú hefur á engan hátt einkarétt á hugtökunum: umburðarlyndi, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi. Þetta voru hugtökin sem kirkjan gat ekki fellt sig við að væru leiðarvísar í íslensku skólastarfi, þar skyldi frekar tekið fram að skólinn ætti að starfa eftir “kristilegu siðgæði”. Þessi hugtök er hægt að hafa að leiðarljósi án þess að hafa kristna trúarjátningu jafnframt að leiðarljósi, það virðast kirkjunnar menn eiga erfitt með að sætta sig við. Því er oft stutt í staðhæfingar um að þeir sem standi utan kristinnar kirkju hafi einhver allt önnur og verri gildi að leiðarljósi í sínu lífi. Þeir sem á einhvern hátt torvelda kirkjunni að sinna boðunarhlutverki sínu eru því oft ásakaðir um illan hug, þegar markmiðið er einmitt að sýna fólki með aðrar lífsskoðanir það umburðarlyndi að það sé ekki skikkað til að taka þátt í trúarathöfnum sem það ekki aðhyllist og þá virðingu að þessir aðilar séu ekki útskúfaðir frá skólasamfélaginu meðan á slíkum athöfnum fer fram vilji þeir ekki taka þátt.

Hvernig kristin kirkja og kristilegar bókmenntir eru samofnar íslenskri menningu er verkefni kennslu í sögu og bókmenntum. Aðkoma kristinnar trúar og trúariðkun inni í íslenskum skólastofum í dag kemur þeirri kennslu ekkert við. Trúariðkun í skólum þar sem heilu bekkirnir eru skikkaðir til að spenna greipar og biðja saman er að mínu mati álíka viðeigandi og ef yfirmaður á vinnustað kallaði starfsmenn reglulega til bænahalds á kaffistofunni. Af ótta við starfsmissi eða ónáð myndu allir taka þátt og biðja án innlifunar. Er þetta sú trúariðkun sem kirkjan óskar sér?

Mín börn hafa, andstætt sínum vilja, tekið þátt í bænahaldi í kennslustundum. Þeim þótti það óþægilegt. Kirkjuheimsóknir fyrir jól hafa verið óvalkvæðar og hafa við þau tækifæri fallið mjög svo óheppileg orð af hálfu starfsmanna skólans í gart barnanna minna. Prestur hefur komið inn í bekk hjá fermingarárgangi og ítrekað reynt að fá dóttur mína til að þiggja viðtalstíma. Fyrir framan bekkinn þurfti hún að verjast ágangi hans. Þegar árgangurinn fór í fermingarferðalag átti að fella niður kennslu. Dóttir mín er prinsippföst og vildi fá sína lögbundnu kennslu. Hún vissi ekki að faðir hennar hafði gert athugasemd við þessa tilhögun og fyrir vikið mátti hún þola að vera spurð hvort pabbi hennar hefði sagt henni að gera þessa kröfu.

Þessi dæmi hér að ofan eru aðeins örfá dæmi úr skólagöngu barna minna. Listinn er miklu lengri. Lengst af var ég þolinmóð og vildi ekki gera neitt mál úr þessu, taldi að minnihlutinn ætti engan rétt. Það var rangt. Með þessum dæmum sem ég tiltek var brotið á rétti barnanna. Mannréttindaráð Reykjavíkur hefur ákveðið að standa upp og verja rétt þeirra. Þeir sem hafa prófað að rísa upp gegn ágangi kirkjunnar vita að það þarf kjark til.